... viltu fá áreiðanlega og stöðugan rekstur ??? Ráddu konu !
Þetta verða nýju skilaboðin á NÝJA Íslandi :)
Til hamingju með Elín :)
|
Nýr bankastjóri Landsbankans |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 9.10.2008 | 13:46 (breytt kl. 13:46) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Svona tölfræði um það hvað grunnskólanemendur KOSTI ríkið er bara bull. Ég sem er annars mjög hrifin af tölfræði gef ekki mikið fyrir þetta nema sjá jöfnuna hinum megin frá líka.
Ímyndum okkur veskið hjá ríki án menntaðra einstaklinga ! Hvað myndi það KOSTA ríkið ef börnin okkar fengju ekki menntun ... ég bara spyr ! ?
|
Hver grunnskólanemandi kostar sveitarfélög 1 milljón |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 29.9.2008 | 09:58 (breytt kl. 09:59) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hvernig má þetta vera? Er þetta lagalega framkvæmanlegt? Að banna aðgang allra yngri en 23 ára,nema í fylgd með fullorðnum? .... má þá 22 ára koma með einum 19 ? Er maður/kona ekki orðinn fullorðin/n samkvæmt landslögum 18 ára ?
... sumar fréttir eru bara skrítnar. Þetta hljómar svolítið eins og lögin sem ,,banna" giftingar útlendinga yngri en 24 ára ! Hvort tveggja jafn fáránlegt og stenst varla mannréttindalög.
|
Yngri en 23 ára bannað að tjalda nema í fylgd með fullorðnum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 14.5.2008 | 10:10 (breytt kl. 10:10) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Alveg passlegt að blogga þetta einu sinni í mánuði og segja þá bara sögur af öðrum, ætli það sé ekki óhætt ? Verð að spyrja Egil!
Nema hvað. Um hádegisbilið í dag þurfti ég að taka leigubíl á fund út í Háskóla, ég fór upp í bílinn í hlíðunum og þegar við vorum að bruna eftir Miklubrautinni sagði leigubílstjórir sí svona upp úr þurru, niðursokkinn í aksturinn ... svona svona litla asíska kona farðu nú frá !" Ég brosti út í annað við að heyra þessa athugasemd sem var sögð í sérlega mjúkum tóni, og við það fannst manninum hann greinilega að útskýra fyrir mér málið. Þannig var nefnilega mál með vexti sagði hann mér í trúnaði að hann þekkti vel ökukennara sem hann keyrði oft og sá hafði sagt honum að Asíubúar þyrftu að meðaltali 200 ökutíma á meðan við hér á Íslandi þyrftu þetta 10-20. Þannig væri nefnilega að heilinn í þeim væri eitthvað öðruvísi ! ... ég verð að viðurkenna að ég gjörsamlega missti andlitið og fyrst hélt ég að maðurinn væri að reyna að segja brandara ... en nei svo var ekki ! Ég hef nú heyrt ýmislegt í starfi mínu fyrir Alþjóðahús en svei mér þá ... ekkert eins fáránlega einfeldningslegt eins og þetta. ... mín viðbrögð ? Nú ég spurði auðvitað manninn hvort hann tryði öðru eins andsk... bulli og þessu ? neiiiiiii, viðurkenndi hann, eins og hann væri samt ekki alveg viss. Svo sagði ég honum frá því hvað ég ynni við ... að ég starfaði við fordómafræðslu fyrir Ahús og spyrði hann hvort ég mætti ekki nota dæmið í kennslu einhvern daginn ... það væri bara einhvern veginn svo borðleggjandi !
Bloggar | 3.3.2008 | 21:41 (breytt kl. 21:41) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Suma daga er maður bara meira miðaldra en aðra ... allir sem ég hitti í dag voru (og eru náttúrulega enn) fæddir 1980 !!!!! Ég lenti á kjaftatörn við leigubílstjóra fyrir klukkan átta í morgun (ávani sem ég erfði eftir föður minn sem talaði alltaf við alla !) - og var í einhverju ofurhversdagslegu spjalli að vitna til einhvers úr æskunni, þ.e. æsku sem ég hélt að væri ca samhliða, nema hvað, leigubílstjórinn snéri sér sármóðgarðu við og sagði ,, jú kannski þegar þú varst ung, en þetta var ekki svona þegar ég var í skola ! ... hann var náttúrulega fæddur greyið 1980 og ég var að vitna til einhvers sem gerðist um miðja síðustu öld ... !
... held ég fari snemma í háttinn, (enda svo miðaldra!) á flug kl. 7 til Hafnar ... nei ekki Kaupmannahafnar því miður, heldur Hafnar í Hornafirði ! ... arrrg hvenær kemur þetta jólafrí eiginlega
Sætir ormar á útleið :)
Bloggar | 5.12.2007 | 22:41 (breytt kl. 22:41) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
jæja, ég er búin að læra eitt í vikunni ... eða reyndar tvennt, nr. 1 að það er i alvörunni fólk til sem les bloggið mitt ... svei mér ef ég er ekki bara dáldið hissa svona miðað við hversu fáar og ómerkilegar færslurnar eru og nr 2 það eru til réttar skoðanir og rangar í heiminum.
Er búin að fá mikil viðbrögð við blogginu mínu um karlmennsku og pólitískan rétttrúnað og gusuna sem ég send Silfrinu ... fékk meðal annars sendan póst þar sem mér var tjáð að skoðun mín á málinu væri einfaldlega röng ! ... og þá hafiði það, það er til réttar og rangar skoðanir ! Galdurinn er svo líklegast að vita hverjir það eru í hvert sinn sem gefa út stimpilinn ,,rétt" og ,,rangt" ... mín ágiskun væri ... hvítir karlar um fimmtugt! og hana nú!
Bloggar | 30.11.2007 | 23:18 (breytt kl. 23:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég er orðin virkjanasinni - er nefnilega svo mikið hlynnt því að virkja fólk :)
Alþjóðahús, Alþýðusamband Íslands, Efling-stéttarfélag, SVÞ-samtök verslunar og þjónustu og VR hafa tekið höndum saman og látið gera barmmerki til að virkja íslenskukennara landsins gagnvart erlendu starfsfólki.
,,ég er að læra íslensku"
,,að fallbeygja kýr"
,,íslenska, það er málið!"
|
300.000 íslenskukennarar virkjaðir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 28.11.2007 | 23:50 (breytt kl. 23:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"... icelandic feminism baffles me, sometimes it seems like just being a man is
politically incorrect."
Verandi sú rétthugsandi femínisti og jafnaðarkona sem ég tel mig vera situr þessi setning í mér. Ég velti fyrir mér hvort þetta sé ekki skoðun fleiri manna ... þ.e. karlmanna. Ég hugsaði til óteljandi rökræðna við vini og kunningja, karlkyns um samskipti kynjanna, mismunandi skilningi og áherslum. Hvort sem rætt er um vændi, forræðismál eða stjórnmálaþátttöku kvenna. Flestir virðast þeir fara í vörn þegar rökin þrjóta og beita þá gjarnan fyrir sig fyrirslætti þar sem konur eru sakaðar um að hafa sett um sérreglur um sérmál (... lesist kvennamál!)
Nú siðast má t.d. sjá þessi einkenni á viðbrögðum góðra og gildra jafnaðarmanna (eins og t.d Eiríks Bergmanns, góðkunningja míns!) á viðbrögðum femínsta við bullþættinum Silfri Egils. Í bloggi sínu fjargviðrast Eiríkur yfir því að konur séu nú bara að bulla og segist ekki skilja hvers vegna þær kvarti yfir fáum konum í þætti Egils þar þegar þær vilji svo ekki einu sinni koma þangað í viðtal! Hann virðist ekkert hafa sett sig inn í málið, sem er tiltölulega ólíkt honum, en þess í stað gusar hann upp í hneykslistón þessari sömu tilfinninu og viðmælandi minn í dag. Og fer allur í vörn yfir því að vera karl, er þetta tilfellið?
Hvað varðar umræðuna um Silfur Egils þá finnst mér að það hefði átt að vera öllum hugsandi konum og líka mönnum löngu ljóst að ekki nokkur maður (og þaðan af síður kona) með viti leggi leið sína í þann þátt sjálfviljug/ur! Einungis stjórnmálamenn í kosningaferð (lesist söluferð) þurfi að láta sjá sig þar rétt á meðan söluferðinni stendur en fáir aðrir. Það ætti flestum að vera ljóst að þar er á á ferðinni er sérdeilis óvandaður þattur í fullyrðingastíl sem hefur engu að bæta við málefnalegar umræður heldur þvert á móti dreifir mykju yfir málefnin og gerir lítið úr vitsmunalegum skoðanaskiptum .... púff, held ég þurfi að róa mig aðeins niður. Verð að viðurkenna að ég verð stundum óþarflega æst og ofsafengin þegar ég hugsa um Silfrið ! ... Í hvert skipti sem ég reyni að ,,víkka út huga minn" eða endurskoða afstöðu mína og kíki á útsendingu þá gerist alltaf það sama, ... eftir fimm mínútur er ég farin að hrista höfuðið og stuttu síðar rýkur úr eyrunum á mér yfir bullinu sem þar á sér stað! ...
En hvað með það ... mér þætti gaman að vita hver upplifun annarra væri á þessari setningu! (sjá efst, ef þið eruð búin að gleyma því sem ég byrjaði á að tala um!
Bloggar | 28.11.2007 | 23:28 (breytt kl. 23:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er orðið langt um liðið síðan ég bloggaði síðast, ástæðuna má rekja held ég mest til vinnuálags undanfarið. Einhvern veginn hefur það farið svo að á kvöldin þegar ég opna tölvuna þá er það ekki mínar uppáhaldssíður sem ég opna heldur venjulega Power point forritið vegna einhverrar fræðslu sem liggur fyrir daginn eftir.
En nú sé ég fram á rólegri tíð, hún er reyndar ekki komin enn en eftir ca viku er orðið rólegt hjá mér, eða svona venjulegt að minnsta kosti :) en nú hætti ég þessu vinnuvæli, veit að þið sem lesið þetta eruð örugglega í nákvæmlega sömu sporum.
Það hefur margt á dagana drifið siðan ég skrifaði síðast, ég er búin að ferðast alveg helling, er það ekki einmitt svoleiðis fréttir sem maður skrifar í bloggið ? :) Ég var á Sauðárkróki í gær, Ísafirði í síðustu viku, svo fór ég á Ólafsvík, Vestmannaeyjum og Austfirðina alla um daginn :) og í næstu viku fer ég líklega á Höfn í Hornafirði. Spennandi ekki satt? Jú jú alveg satt, ég var þarna með námskeið fyrir ýmsa aðila og hitti náttúrulega fullt af skemmtilegu fólki. Mest var þó gaman á Ísó, að hitta gamlar og góðar vinkonur, var svo heppin að þurfa að gista og þá var náttúrulega líka tækifæri til að opna eina rauða ... eða voru þær fleiri ?... stelpur munið þið þetta ? :)
Hlakka mikið til að komast í jólafrí, ætla að hafa þetta eins og þegar maður var í skóla og fara í frí þann 17 des :) - verð náttúrulega eitthvað í Múltí Kúltí að skemmta mér í búðarleik og svo bara að danglast með krökkunum, lofa þvi hér og nú að ég þríf ekki eldhússkápana - promise!""""! Þið sem þekkið mig vitið náttúrulega að þetta verður mér erfitt að standa við en ég mun beita hinum mikla viljastyrk mínum til að standa við þetta.
Annars var tilefnið fyrir skrifunum helst það að ég rak augun í kostulega setningu á mbl.is áða, hún var svona ...
Ég var að lesa frétt á mbl.is og sá þar þessa setningu í lítilli frétt um bókmenntaviðurkenningu ,, ... Sigurvegarinn hefur fengið í verðlaun abstrakt styttu af fólki að eiga mök á sjötta áratugnum ...!
Hvað var svona einkennandi fyrir mök á sjötta áratugnum ? Nú er ég svo ung að ég man þetta ekki, en þið sem eldri og vitrari eruð megið gjarnan segja mér :)
Bloggar | 28.11.2007 | 21:02 (breytt kl. 21:02) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bryndís Hlöðvers & Sigrún Elsa :) allt í sama pakka - nú eru jól!
Það er ekkert meira að segja um nýjustu fréttir af Orkveitumálum!
Nú er ég glöð - til hamingju konur og til hamingju Reykvíkingar.
|
Bryndís Hlöðversdóttir nýr stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 16.10.2007 | 14:41 (breytt kl. 14:42) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggvinir
| Feb. 2010 | ||||||
| S | M | Þ | M | F | F | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
| 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
| 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
| 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
| 28 | ||||||
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.2.): 2
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 1136
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar




toshiki
kjartanis
amal
eurovision
truno




