Það er orðið langt um liðið síðan ég bloggaði síðast, ástæðuna má rekja held ég mest til vinnuálags undanfarið. Einhvern veginn hefur það farið svo að á kvöldin þegar ég opna tölvuna þá er það ekki mínar uppáhaldssíður sem ég opna heldur venjulega Power point forritið vegna einhverrar fræðslu sem liggur fyrir daginn eftir.
En nú sé ég fram á rólegri tíð, hún er reyndar ekki komin enn en eftir ca viku er orðið rólegt hjá mér, eða svona venjulegt að minnsta kosti :) en nú hætti ég þessu vinnuvæli, veit að þið sem lesið þetta eruð örugglega í nákvæmlega sömu sporum.
Það hefur margt á dagana drifið siðan ég skrifaði síðast, ég er búin að ferðast alveg helling, er það ekki einmitt svoleiðis fréttir sem maður skrifar í bloggið ? :) Ég var á Sauðárkróki í gær, Ísafirði í síðustu viku, svo fór ég á Ólafsvík, Vestmannaeyjum og Austfirðina alla um daginn :) og í næstu viku fer ég líklega á Höfn í Hornafirði. Spennandi ekki satt? Jú jú alveg satt, ég var þarna með námskeið fyrir ýmsa aðila og hitti náttúrulega fullt af skemmtilegu fólki. Mest var þó gaman á Ísó, að hitta gamlar og góðar vinkonur, var svo heppin að þurfa að gista og þá var náttúrulega líka tækifæri til að opna eina rauða ... eða voru þær fleiri ?... stelpur munið þið þetta ? :)
Hlakka mikið til að komast í jólafrí, ætla að hafa þetta eins og þegar maður var í skóla og fara í frí þann 17 des :) - verð náttúrulega eitthvað í Múltí Kúltí að skemmta mér í búðarleik og svo bara að danglast með krökkunum, lofa þvi hér og nú að ég þríf ekki eldhússkápana - promise!""""! Þið sem þekkið mig vitið náttúrulega að þetta verður mér erfitt að standa við en ég mun beita hinum mikla viljastyrk mínum til að standa við þetta.
Annars var tilefnið fyrir skrifunum helst það að ég rak augun í kostulega setningu á mbl.is áða, hún var svona ...
Ég var að lesa frétt á mbl.is og sá þar þessa setningu í lítilli frétt um bókmenntaviðurkenningu ,, ... Sigurvegarinn hefur fengið í verðlaun abstrakt styttu af fólki að eiga mök á sjötta áratugnum ...!
Hvað var svona einkennandi fyrir mök á sjötta áratugnum ? Nú er ég svo ung að ég man þetta ekki, en þið sem eldri og vitrari eruð megið gjarnan segja mér :)
Flokkur: Bloggar | 28.11.2007 | 21:02 (breytt kl. 21:02) | Facebook
Bloggvinir
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.